raforkulög.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu í þessu máli. En mig langar að spyrja hv. þingmann út í þörfina á heitu vatni. Nú er það svo að það svið þar sem Íslendingar upplifa hvað mestan mun á almannaþjónustu eftir því hvar þeir búa er aðgengi að heitu vatni. Mér finnst t.d. eitthvað mjög óeðlilegt við það að Rarik hafi fengið útboðið til að bora eftir heitu vatni á fjörðunum fyrir austan. Það er heitt vatn sums staðar, annars staðar ekki. Rarik er aðilinn sem selur íbúum þessara bæjarfélaga heita vatnið þannig að Rarik hefur í raun beina fjárhagslega hagsmuni af því að þarna finnist ekki heitt vatn. Í staðinn þarf að hita vatnið með því að kynda og sú kynding er keyrð áfram með því að brenna olíu. Vonandi finnst heitt vatn á fleiri stöðum og þá myndast í leiðinni meira jafnræði. En finnst hv. þingmanni stjórnvöld hafa gert nógu mikið til að stuðla að jafnræði milli fólks óháð búsetu hvað varðar aðgengi að heitu vatni?