154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[17:29]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Nei, hér er kannski nærtækasta dæmið um að það sé orkuskortur eða yfirvofandi orkuskortur og þá sérstaklega á milli mismunandi landshluta. Þetta er mjög skrýtið því að þegar landshlutasamtök hafa komið til okkar og kynnt þær áætlanir sem gætu leitt til þess að það kæmist á meiri hitaveita á þessum köldu svæðum þá er peningurinn ekki svo mikill, en samt gerist einhvern veginn ekkert. Það er mjög skrýtið. Við höfum örugglega einhvern tímann lagt fram breytingartillögur á því sem var hafnað og svoleiðis og ég held að margir flokkar hafi gert það, þannig að það hreyfist ekkert rosalega mikið í því. En á heitu svæðunum glímum við líka við ákveðna sóun og ég held að við höfum bara í ofgnótt okkar af heitu vatni gleymt eða ekki lært nógu vel hversu verðmæt þessi auðlind er. Við gætum auðveldlega (Forseti hringir.) náð mjög góðum árangri með því að pæla kannski aðeins í því hvar við notum heitt vatn.