154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[17:31]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er einstaklega góð spurning og því miður er ekki til mjög stutt svar við henni. Endurkaup á orku eru dálítið flókið fyrirbæri. Þarna skiptir máli í rauninni hvort verið sé að kaupa aftur orku til að sinna skyldu stjórnvalda gagnvart heimilum og smærri fyrirtækjum eða til að vinna upp í einhverja aðra forgangsorku innan hins geirans. Ef sú staða kemur upp að Landsvirkjun þurfi að kaupa orku aftur til þess að selja til heimila og smærri fyrirtækja þá erum við að gera eitthvað meiri háttar rangt. Þá er þetta gjörsamlega galið. En í hinu tilfellinu eru það kannski einhverjir samningar sem er verið að vega og meta í eina eða aðra átt eða eitthvað þvíumlíkt sem gæti alveg virkað. Hitt er síðan þegar þessir stórnotendur eru ekki að nota ákveðna orku og ætla að selja hana áfram og jafnvel til Landsvirkjunar aftur, þá er það gjörsamlega galið. Þannig að við erum með nokkra svona galna og allt í lagi möguleika í þessari stöðu.