raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ef ég skildi hann rétt, þegar hann fjallaði um Norðmenn og Suður-Noreg, þá heyrðist mér á máli hans að Norðmenn hefðu samið af sér eða tekið inn reglur varðandi evrópska raforkumarkaðinn sem þeir hefðu ekki átt að gera. (Gripið fram í: Nei.) En alla vega að hátt raforkuverð í Noregi væri ekki markaðnum að kenna. Ef hann gæti útskýrt aðeins nánar hvað það var raunverulega sem var þarna varðandi háa raforkuverðið. Og eins ef hann gæti kannski útskýrt fyrir okkur hver grundvallarmunurinn er á Noregi og Íslandi þegar kemur að raforkumarkaði Evrópusambandsins. Í öðru lagi þá talaði hv. þingmaður um að það væri næg raforka. Ég er hér með fréttatilkynningu frá 8. febrúar, held ég að sé rétt, þar sem talað er um raforkuskort. Það er raforkuskortur í landinu og það er þegar farið að skerða notkun stórnotenda. Þannig að það er alveg gríðarlegur raforkuskortur í landinu og það er ástæðan fyrir þessu frumvarpi. (Gripið fram í.)