154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[17:34]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Já, það má alveg vera orkuskortur til stórnotenda, það er bara í fínu lagi. Þá þurfa þeir bara að borga meira fyrir raforkuna sem stendur til boða. Það er bara fínt. En ekki snerta heimilin og smærri fyrirtæki. Það þarf að tryggja örugga orku á sanngjörnu verði. Hinir keppa um afganginn og það er bara á hæsta verði sem hægt er að fá það. Ef það er ásókn í þá raforku þá eigum við að sjálfsögðu að sækjast eftir hæsta verði fyrir það. Við eigum ekki að selja okkur ódýrt gagnvart þeim, það er einfaldlega bara þannig. Þess vegna má vera orkuskortur þar. Við eigum ekki að þurfa að hlaupa á eftir þeim til að virkja heilan helling meira til að tryggja lágt verð til stórnotenda. Það er einfaldlega þannig.

Varðandi Noreg þá voru ákveðnir aðilar sem sáu tækifæri í að gera langtímasamninga, svona í stuttu og einföldu máli, sem gerði það að verkum að það myndaðist ákveðinn orkuskortur út af lélegri úrkomu og ýmislegs svoleiðis. Þeir fengu í rauninni framsalshringinn, vítahringinn. Það var tilbúinn orkuskortur að vissu leyti. Þetta er ein af nokkrum ástæðunum en ein af helstu ástæðunum alla vega sem eru nefndar í greiningum á þessu.