154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[17:38]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Hér erum við með frumvarp til laga sem er heilar fjórar greinar. Það er nú ekki meira en það. Þetta frumvarp er tvíþætt. Það fjallar um viðmið um fullnægjandi raforkuöryggi eða mat á raforkuöryggi. Það er í 1. gr., 2. og 3. gr. fjallað um skömmtun raforku þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, annars vegar þegar framboðsskortur er á raforku almennt og þegar framboð á raforku annar ekki eftirspurn. Um það er fjallað í 2. gr. frumvarpsins og í 3. gr. er fjallað um það þegar framboð á raforku er ekki fullnægjandi, fullnægir ekki eftirspurn á dreifisvæði, þ.e. bæði 2. og 3. gr. lúta að því þegar það er skortur á raforku, svo einfalt er það. Og hvað á þá að gera? Jú, þá á að veita forgang til raforku til heimilisnota, mikilvægra samfélagsinnviða og fyrirtækja með færri starfsmenn en 50 og þar sem ársvelta eða efnahagsreikningur er ekki yfir 1,5 milljörðum. Svo er 4. gr. gildistökuákvæði. Ekki er það nú meira en það. Þar segir að lögin öðlist þegar gildi.

Við erum að tala hér um frumvarp sem er eins konar skömmtunarfrumvarp. Það má segja að þetta sé frumvarp til laga um skömmtun á raforku. Það að ríki sem er með jafn mikla gnótt af raforku og Ísland skuli þurfa að setja reglur um skömmtun á raforku ætti að hringja bjöllum í íslensku samfélagi og hér í þingsalnum og hjá stjórnvöldum. 2. og 3. gr. er alveg klár. Það er kjarninn í þessu frumvarpi, skömmtun á raforku ef það er skortur á framboði á dreifisvæði og almennur skortur á raforku og 1. gr. fjallar um matið á raforkuörygginu. Að við sem erum með þetta gríðarlega magn raforkuframleiðslu skulum þurfa að fara í það að setja sérstök lög — og þetta var kallað fyrir áramót, í desember, neyðarlög, til þess að tryggja heimilum og minni fyrirtækjum raforku — þá ættum við að fara aðeins að skoða málið. Hvernig komumst við í þessa aðstöðu?

Ég er hér með fréttatilkynningu frá Landsvirkjun frá 8. febrúar síðastliðnum þar sem hún tilkynnir stórnotendum að þeim sé frjálst að endurselja forgangsraforku sína vegna þröngrar stöðu í raforkukerfinu. Það er kveðið á um það sérstaklega í samningnum milli Landsvirkjunar og stórnotenda að þeim sé ekki heimilt að selja þessa orku aftur inn í kerfið. Hvað er verið að gera hérna? Jú, Landsvirkjun er að segja við stórnotendur: Við erum búin að selja ykkur raforkuna á alveg gríðarlega lágu verði en þið megið selja hana aftur inn í kerfið á enn þá hærra verði. Það er það sem verið er að gera. Stórnotendurnir geta grætt fúlgur fjár bara með því að kaupa hráa ódýra orku samkvæmt raforkusamningunum og selja hana síðan aftur inn á kerfið á miklu hærra verði af því að það er skortur á raforku í landinu.

Það er algerlega með hreinum ólíkindum að við séum komin þangað. Við erum hérna að sjá nánast gjaldþrot á orkustefnu þjóðarinnar hvað þetta varðar, í raforkumálum. Á Vestfjörðum er t.d. dísilrafstöð í Bolungarvík. Ef Mjólkárvirkjun klikkar þarf að keyra allt á dísil raunverulega á stórum hluta Vestfjarða. Það er vegna þess að það er skortur á raforku, vantar virkjun á Vestfjörðum og líka það að Vestfirðir eru ekki tengdir inn í hringkerfi flutningskerfis raforku.

Hvernig komumst við í þessa stöðu? Jú, það má rekja þetta til þess að við höfum verið hérna eins og enginn sé morgundagurinn að innleiða orkupakka Evrópusambandsins. Það er staðreynd málsins. Það var talað hérna um Noreg áðan, að það hefðu verið stórnotendur sem keyptu raforku á markaði og þá hækkaði allt verð. Það er bara ekki alveg rétt. Það er vegna þess að Noregur, og þetta er grundvallaratriði í muninum á Noregi og Íslandi, er með sæstrengi inn á raforkumarkaði Evrópu en við ekki. Það að verðið í Noregi sé orðið svo rosalega hátt er vegna þess að það er svo hátt verð á raforkumörkuðunum í Evrópu sem þeir eru að selja inn á. Það framboð sem Norðmenn er að setja inn á markaðinn skiptir náttúrlega engu máli upp á raforkumarkaðinn sjálfan. Það er það lítið miðað við heildarmarkaðinn. Sama ætti við um Ísland, skiptir engu máli. Það myndi hækka verðið upp úr öllu valdi.

Búseta á norðurslóðum, búseta á Íslandi og búseta í Noregi, sérstaklega Mið- og Norður-Noregi, byggir á ódýrri orku. Það er þannig. Það myndi enginn fara að setja niður álver á Íslandi eða rækta blóm á Íslandi, tómata á Íslandi eða agúrkur á Íslandi út frá landfræðilegri stöðu Íslands. Þetta er allt gert vegna þess að hlutfallslegir yfirburðir Íslands eru ódýr orka og ef við ætlum að fara að klúðra þessum hlutfallslegum yfirburðum okkar til að fara að selja inn á markað þar sem við skiptum raunverulega engu máli erum við að missa þessa hlutfallslegu yfirburði okkar í efnahagsmálum án þess að fá nokkuð til baka, jú nema það að fá hátt raforkuverð sem hefði enga þýðingu fyrir íslenskt samfélag. Við erum búin að reka stóriðjustefnu á ódýrri orku, byggja upp íslenskt atvinnulíf áratugum saman, frá 1969 eða 1970 þegar við byggðum upp í Straumsvík. Við höfum byggt fleiri álver og meiri stóriðju á grundvelli þessarar stóriðjustefnu. Þetta hefur verið mjög farsæl stefna, mjög farsæl atvinnustefna. Þetta er ein helsta stoðin undir íslensku atvinnulífi og tekjur af stóriðju eru í þriðja sæti eða öðru sæti hvað varðar útflutningstekjur Íslands. Þetta er afrakstur stóriðjustefnu sem var búin til í þessum sal af íslenskum stjórnvöldum á sínum tíma, mjög farsæl. Við munum ekki geta verið með stóriðjustefnu til framtíðar ef við ætlum að fara undir raforkumarkað Evrópusambandsins, svo það liggi algjörlega fyrir.

Þegar við skoðum þriðja orkupakkann, sem er vert að skoða, þá er grundvallarmunur við Noreg. Hver er hann? Ísland er ekki tengt raforkumarkaði Evrópusambandsins. Við erum ekki með sæstreng til Evrópu líkt og Norðmenn eru með nokkra sæstrengi inn á raforkumarkað meginlandsins. Við erum það ekki. Og til hvers eigum við þá að fara að leiða inn í íslenska löggjöf lög Evrópusambandsins um raforkuviðskipti yfir landamæri? Til hvers eigum við að gera það? Að sjálfsögðu eigum við ekki að gera það. Við eigum bara að segja það og við áttum að segja það við þriðja orkupakkann: Nei, takk, við ætlum að nýta okkur stjórnskipulega fyrirvarann, við ætlum ekki að gera þetta, vegna þess að við erum ekki tengd. Við þurfum ekki að vera með fullveldisafsal til ACER-stofnunarinnar, samstarfsstofnunar raforkueftirlitsaðila sem sér um eftirlit með raforkuviðskiptum yfir landamæri, af því að við stundum ekki raforkuviðskipti yfir landamæri. Svo einfalt er það. Þetta myndu allir skilja, tíu ára krakki myndi skilja það en það var ekki skilningur á þessu þegar þriðji orkupakkinn var samþykktur. Það komst ekki í gegn þá, þessi einfaldi hlutur. Meira að segja er það þannig að það var skilningur á þessu úti í Brussel á sínum tíma, og það var sameiginleg yfirlýsing á sínum tíma hvað þetta varðar. Það var á milli utanríkisráðuneytisins og Íslands. Í sameiginlegum skilningi utanríkisráðherra og orkumálastjóra ESB frá 22. mars 2019 kemur fram að vegna sérstöðu Íslands með einangrað dreifikerfi raforku hafi stór hluti ákvæða þriðja orkupakkans hvorki gildi né raunhæfa þýðingu hérlendis, þannig var nú það., vegna verulega frábrugðinna aðstæðna á Íslandi. Það segir einnig eftirfarandi:

„Að því er varðar innleiðingu þriðja orkupakkans á Íslandi eru aðstæður á Íslandi verulega frábrugðnar þeim sem eru til staðar í löndum þar sem orkunet tengjast yfir landamæri. Þess vegna hentar hið sérstaka fyrirkomulag fyrir Ísland, sem sameiginlega EES-nefndin samþykkti […]

Raforkukerfi Íslands er eins og stendur einangrað kerfi og ekki tengt við raforkusæstreng milli Íslands og orkukerfis innri markaðar ESB. Í því ljósi hefur stór hluti ákvæða þriðja orkupakkans, þ.e. þau sem varða viðskipti og grunnvirki fyrir raforku yfir landamæri, ekki gildi eða neina raunhæfa þýðingu fyrir Ísland …“

Hvernig stóð þá á því á grundvelli þessarar yfirlýsingar að við erum búin að setja í löggjöf á Íslandi lög sem varða raforkuviðskipti yfir landamæri, búin að parkera því í reglugerð sem skiptir engu máli? Við áttum bara að segja: Nei, við ætlum að segja nei við þriðja orkupakkanum en við ætlum að fara í samningaviðræður við sameiginlegu nefndina, og það er á grundvelli 103. gr. EES-samningsins og 102. gr. samningsins, um það að við ætlum að taka upp sambærilega löggjöf sem taki tillit til sérstakra aðstæðna á Íslandi. Þá myndum við geta tekið neytendalöggjöfina inn, raforkuöryggi, allt sem hentar okkar aðstæðum, en það var ekki gert. Þriðji orkupakkinn var keyrður í gegn með fullveldisafsali og öllu og við sitjum hérna uppi með löggjöf sem hefur enga þýðingu.

Nei, hins vegar erum við að selja upprunaábyrgðir til Evrópusambandsins. 87% af allri raforku á Íslandi eru upprunnin úr kolum, jarðefnaeldsneyti og kjarnorku. Mig minnir að það séu 29% sem eru úr kjarnorku og svo er mismunurinn úr kolefnum. Svo erum við hérna með stjórnarsáttmála ríkisstjórnar frá 2021 um græna hagkerfið. Við ætlum að fara í orkuskipti og við ætlum að vera fremst í heimi, það er stórskemmtilegur kafli í stjórnarsáttmálanum. Fjórum eða fimm sinnum segir þar að við ætlum að vera best í heimi. Alveg með hreinum ólíkindum. Ég er því miður ekki með stjórnarsáttmálann hérna en það er að við ætlum að vera best í heimi í öllu sem lýtur að orkuskiptum og græna hagkerfinu. Hvernig getur ríki sem er með 87% af uppruna raforkunnar, ég veit að það er á pappírunum, úr kolum og kjarnorku — það eru erlend fyrirtæki sem eru búin að kaupa þetta og skreyta sig með íslenskum fjöðrum á meginlandi Evrópu. Að tala svo um að við séum svo einstaklega grænt hagkerfi á Íslandi, við séum með svo mikið af grænni orku og bla, bla, bla — við erum búin að selja þetta allt saman, við erum búin að selja þennan uppruna, við erum búin að selja grænu orkuna úr landi. Það er það sem við erum búin að gera.

Svo núna erum við búin að markaðsvæða þetta allt saman. Það er búið að splitta þessu öllu upp og það á að binda þetta núna á litla pollinum Ísland, 400.000 manna samfélag ætlar að vera með markaðsverð, afleiður og guð má vita hvað. Það verður hærra verð þegar jólasteikin fer í ofninn af því að þá er meiri eftirspurn og þegar fólk fer í sturtu þá er hægt að segja að það verði hærra, þá er hægt að kreista meira út úr almenningi í landi sem er Sádi-Arabía raforkunnar. Sádi-Arabía myndi aldrei nokkurn tímann fara inn í olíupakka ESB, aldrei. Noregur myndi aldrei nokkurn tíma fara inn í olíupakka Evrópusambandsins ef það væri. Noregur samdi t.d. um undanþágu fyrir Melkøya í gaspakkanum, helstu LNG-höfn Evrópu, útflutningshöfn Noregs. Þeir flytja allt sitt gas, LNG, fljótandi gas, í gegnum Melkøya, Mjólkey. Nei, að sjálfsögðu fengu þeir undanþágu þar. Við vorum inni í gaspakkanum, öðrum gaspakka, en við vorum ekki í þriðja gaspakkanum af því að nefndin sá það, heyrðu, það eru bara gaskútar á Íslandi, við þurfum ekkert að fara að samtengja Ísland við gaskerfi Evrópu. Það er algerlega kristaltært ef við skoðum þetta alveg frá fyrsta orkupakkanum, það segir í inngangi að fyrsta orkupakkanum sem tekinn var upp í raforkulög með lögum nr. 65/2003, ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar frá 1999 í 6. mgr. inngangsins:

„Stofnun innri markaðar á sviði raforku stuðlar að samtengingu og rekstrarsamhæfi kerfanna.“

Í 1. mgr. segir:

„Markmið ESB hefur verið skýrt frá upphafi og það er að koma á innri raforkumarkaði ESB með samtengdum og rekstrarsamhæfðum raforkukerfum á milli ESB-ríkja.“

Samtengdum og rekstrarsamhæfðum raforkukerfum á milli ESB-ríkja. Það kemur skýrt fram í inngangi fyrstu orkutilskipunarinnar, skýrt fram. Það á að gera þetta allt saman smám saman. Ísland er ekki að fara að vera samtengt og með rekstrarsamhæft kerfi við innri markað Evrópusambandsins í raforkumálum. Við erum ekki að fara að leggja sæstreng en það er hins vegar líklegt í framtíðinni að við verðum þvinguð til þess. Það er hins vegar búið að viðurkenna það, í öðrum orkupakkanum var viðurkennt að Ísland væri skilgreint sem lítið einangrað raforkukerfi. Svo í þriðja orkupakkanum, þar sem hornsteinninn að orkusambandi Evrópu var lagður, með samstarfsstofnuninni, sem er grundvallarbreyting á innri markaði ESB, þá tökum við þetta allt saman inn, allt saman eins og það leggur sig. Og hvar er grundvallarstoð orkusambands Evrópu, orkusambands ESB? Jú, það er í Lissabon-sáttmálanum frá 2009, 194. gr. Var Ísland spurt að því hvort það ætti að samþykkja Lissabon-sáttmálann? Nei, ekki Noregur heldur, ekki Liechtenstein heldur. Það voru hins vegar öll ESB-ríkin. Það voru þjóðaratkvæðagreiðslur í sumum ESB-ríkjum um hvort þau ætluðu að samþykkja Lissabon-sáttmálann eða ekki. Nei, við gerðum það ekki, kom ekki nálægt okkur, ekki spurð að því. En svo er þessu troðið ofan í kokið á okkur og sagt að við verðum að gera það.

Ég man svo vel þegar utanríkisráðherra Noregs kom hingað til landsins og talaði við þáverandi utanríkisráðherra, Guðlaug Þór Þórðarson, og fór að skoða bagga, það var svo mikið rigningarsumar í Noregi það árið að þau fóru að skoða bagga hérna. Hún var komin til Íslands til þess að krefjast þess, skuldbinda okkur til þess að samþykkja þriðja orkupakkann, það var gert fyrir Norðmenn vegna þess að þeir vildu ekki lenda í töfum með sín kerfi gagnvart meginlandinu. Það var það sem var verið að gera. Íslenska ríkisstjórnin var búin að skuldbinda sig gagnvart Noregi um að innleiða þriðja orkupakkann. Það var deginum ljósara. Það las maður í fréttum og sá í fréttum í Noregi fram og til baka. Það var tilgangurinn með því og það var síðan farinn túr upp í Borgarfjörð til að skoða heybagga sem norskir bændur keyptu í leiðinni.

Ég tel að ástandið í raforkumálum landsins, og þetta frumvarp skýrir það algerlega, þetta skömmtunarfrumvarp um raforkuöryggi — við erum algerlega búin að keyra í strand hvað varðar raforkuöryggi í landinu. Það sýnir það líka að við áttum aldrei að samþykkja þriðja orkupakkann. Með því erum við í raun búin að afsala okkur valdi um það hvernig við ætlum að haga markaði hérna. Hvernig ætlum við að hafa raforkumál í landinu, orkumál í landinu? Við byggðum þetta upp hægt og sígandi á grunni stóriðjustefnunnar. Þetta var samfélagslegt verkefni alveg eins og hitaveitur sveitarfélaganna en núna á að markaðsvæða þetta allt, afhenda allt einkaaðilum líklega á endanum. Það er þegar búið að kaupa HS Orku, einhver vogunarsjóður í London. Þannig verður þetta í framtíðinni líklega, nema við stígum niður og segjum stopp.

Það var svo fyndið í umræðu um þriðja orkupakkann að það var verið að segja: Jú, en Alþingi Íslendinga ætlar að ákveða hvort það verði samþykktur sæstrengur eða ekki. Já, það var bara til heimabrúks. Það var bara til að blekkja íslenskan almúga og íslenska kjósendur. Að sjálfsögðu getum við ekki stjórnað því hvort það komi sæstrengur eða ekki ef við erum búin að skrifa undir það að vera hluti af orkusambandi Evrópu. Það er svipað og ef við samþykkjum frjálsa vöruflutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins en neitum að byggja vöruflutningahafnir, nákvæmlega það sama. Við getum ekki verið hluti af innri markaði varðandi frjálsa vöruflutninga og neitað því að byggja vöruflutningahafnir svo að þessi frjálsa vara geti flætt frjálst til Íslands og til baka. Það er nákvæmlega sama með fólksflutninga. Við getum ekki sagt: Jú, heyrðu, við ætlum að taka á móti fólki hérna til að vinna á Íslandi en við ætlum ekki að leyfa því að lenda á Íslandi. Það er nákvæmlega sama með raforkuna. Við erum búin að skuldbinda okkur til þess að ef það kemur nægilegt fé, ef einkaaðilar og aðilar vilja leggja sæstreng og Ísland segir nei þá fara þeir í samningsbrotamál að sjálfsögðu. Eini þröskuldurinn fyrir sæstreng er sá hvað það er gríðarlega dýrt. Þetta er svo gríðarlega dýrt. En þegar það er komið á þá fara 80% af hagnaðinum til eiganda sæstrengsins. Við værum að pumpa hrávörunni upp eins og enginn væri morgundagurinn með auðlindinni okkar en hagnaðurinn færi beint til eiganda sæstrengsins. Það verður eiginlega að vinda ofan af þessu.

Annað atriði sem skiptir líka máli varðandi orkuskort er að sjálfsögðu rammaáætlunin. Það er það að innan ríkisstjórnar sem á erfitt með að koma sér saman um útlendingalög — við erum að fá tvö útþynnt frumvörp hvað varðar hælisleitendur og meira að segja er verið að stíga niður fæti varðandi reglur fyrir lögregluna sem hreinlega snúast bara um að lögreglan geti fylgst með fólki á almannafæri, og svo skoðað einstaklinga á almannafæri ef þeir eru í skipulagðri brotastarfsemi eða ógna þjóðaröryggi. Þetta er náttúrlega að stórum hluta til bara verklag lögreglunnar í dag. Fjölmiðlarnir geta fylgst með fólki á almannafæri, þeir geta farið inn á veitingahús og fylgst með hverjir eru þar inni, frægu fólki, hvernig sem það er. Þá er einn stjórnarflokkurinn á móti því. Það er nákvæmlega sama með rammaáætlun. Þar er kveðið á um það hvar má virkja, hvar má ekki virkja og hvar á að bíða, hvaða virkjunarkosti á að setja í bið. Stjórnarflokkarnir koma sér ekki saman um það hvaða virkjanir á að byggja. Það er allt stopp. Meira að segja Hvammsvirkjun sem er komið leyfi fyrir, það er allt stopp líka þar. Við vitum ekki hvort má virkja eitthvað á Vestfjörðum eða ekki, sem er algerlega knýjandi nauðsyn á eftir alla atvinnuuppbygginguna þar. Eitt flottasta fyrirtæki landsins, Kerecis, við fórum og töluðum við þau hjá Kerecis og hvað segja þau að vanti á Vestfjörðum? Jú, það vantar raforku, aukið afhendingaröryggi raforku, við þurfum að komast inn í hringtenginguna og það vantar orkuframleiðslu í héraði. En það er allt stopp í ríkisstjórninni vegna þess að allir eru að bíða eftir því að það náist samkomulag innan stjórnarmeirihlutans um það hvar á að virkja og rammaáætlun er í algjörri sjálfheldu.

Þetta skömmtunarfrumvarp sem hér er til umræðu, þessar fjórar greinar, 2. og 3. gr. um skömmtun, ég tel að við eigum að samþykkja það úr því sem komið er. En hugmyndaflugið er ekki meira en svo að þegar er verið að tala um heimilisnot sem forgang og líka samfélagsinnviði og fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn þá er vísað í frumvarpinu til ESB. Þeir gátu ekki fundið það hjá sjálfum sér og sagt: (Forseti hringir.) Heyrðu, að sjálfsögðu á að láta heimilin í landinu njóta forgangs, íslenska þjóð. (Forseti hringir.) En þetta frumvarp er mikilvægt þótt stutt sé en sýnir algerlega merki þess hvar íslenskur raforkumarkaður er og hver raforkustefna stjórnvalda er. (Forseti hringir.) Það er algjört núll.