154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[18:10]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Raforka er vara, það er alveg rétt. Raforka fellur undir gildissvið EES-samningsins sem vara. Gas er líka vara, fellur undir EES-samninginn. Við erum ekki inni í þriðja gaspakkanum. Við vorum inni í öðrum gaspakkanum en ekki þriðja, þetta er hvort tveggja vara. Við vitum alveg öll af hverju við erum ekki undir þriðja gaspakkanum. Það er af því að við erum ekki með gasleiðslur út um allar koppagrundir. Við erum ekki með gasmarkað. Við kaupum gaskúta fyrir gasgrillin okkar og búið spil. Jú, aðeins í iðnaði og atvinnustarfsemi og svoleiðis.

Málið er það að við erum ekki tengd raforkumarkaði Evrópusambandsins og frjálst flæði raforku innan EES frá Íslandi er ómögulegt. Raforkan er mjög sérstaks eðlis. Þú getur ekki sett hana á rafgeyma og flutt hana út. Það verða að vera leiðslur og þær leiðslur eru ekki fyrir hendi. Frjáls flutningur þessarar vöru, sem er raforka, getur ekki átt sér stað vegna þess að það eru engar leiðslur. Þess vegna eigum við ekki að vera inni í þriðja orkupakkanum. Önnur ástæðan fyrir því er sú að ákvæðið, sem er grundvöllur orkusambands ESB, er í Lissabon-sáttmálanum frá 2009. Við samþykktum aldrei Lissabon-sáttmálann. Við samþykktum aldrei 194. gr. Lissabon-sáttmálans. Sum önnur ríki fóru í þjóðaratkvæðagreiðslu til að samþykkja Lissabon-sáttmálann. En annar aðilinn er alltaf að uppfæra EES-samninginn eins og enginn sé morgundagurinn, með auknum samruna, með raforkusambandi, með heilsusambandi, það er næst á dagskrá, og svo áfram. Við eigum að sogast inn í það en það á ekki að standa við samninginn sem var gerður á sínum tíma. Við eigum náttúrlega að standa í lappirnar og segja hvernig þessi samningur — ég tek það fram að ég er hlynntur EES-samningnum — hentar okkur.

Mig langar aðeins að koma inn á eitt atriði varðandi stórnotendur þegar þeir ætla að selja orku á margföldu heildsöluverði. Þeir geta líka sagt: Við ætlum að fá tvöfalt verð. Við ætlum að hafa það þannig að ef það er græn orka þá heimtum við hærra verð og (Forseti hringir.) ef þú vilt hafa hana með kola- eða kjarnorkubindingunni þá verður lægra verð. Stunda vörusvikin eins og allir aðrir.