154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[18:14]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég verð að viðurkenna að ég þekki ekki umrædd ákvæði en ég vil endilega fá að sjá skrif hv. þingmanns um 194. gr. og 122. gr. í EES-samningnum. Varðandi þann forgang sem verið er að veita í þessu frumvarpi þá er það til heimila og það er til innviða og það er til fyrirtækja með færri en 50 starfsmenn þar sem veltan er minni en 1,5 milljarðar. Að sjálfsögðu verður að veita heimilum forgang, það er bara grundvallaratriði. En þetta er líka tekið úr ESB-löggjöf. Hugmyndaflugið var ekki svo mikið í þessu frumvarpi, við erum raunverulega að gera það. Það er sjálfsagt að gera það, að taka það sem á við fyrir Ísland. Það er enginn að segja að það eigi ekki að gera. En við getum líka fundið það upp sjálf, að við ætlum að láta heimilin njóta forgangs, að sjálfsögðu eigum við að gera það. En ég hlakka til að fá að ræða betur við hv. þingmann um skrif hennar um ákvæði Lissabon-sáttmálans og ákvæðin sem hún nefndi í EES-samningnum. (Forseti hringir.) En aðalatriðið er þetta: Við eigum ekki að vera hluti af orkusambandi Evrópu, af því að við erum ekki tengd. Út á það ganga allir orkupakkarnir, markmiðið er skýrt; að tengjast inn á einn raforkumarkað. Við erum ekki þar. Við erum eyja í Norður-Atlantshafi.