154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[18:15]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Ég hafði nú svolítið gaman af. Mér fannst þetta mest snúast um þriðja orkupakkann og tengsl við hann. Ég áttaði mig ekki alveg alltaf á tengslunum.

Það kemur fram í nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar um hvað málið fjallar og hvað verið er að fást við. Það kemur meira að segja fram að við meðferð málsins fyrir nefndinni var rætt um að frumvarpið væri eitt skref af mörgum sem lúta að endurskoðun ráðuneytisins á regluverki er varðar orkumál. Því er ætlað að tryggja raforkuöryggi notenda sem teljast ekki til stórnotenda og mæla fyrir um forgangsröðun, komi til þess að grípa þurfi til skömmtunar. Það er komið víða við. Ég vil kannski fá það fram hjá hv. þingmanni, sem er greinilega ekki alveg sáttur við málið og frumvarpið og þær breytingartillögur sem hafa verið lagðar fram á því, hvernig hann vill þá takast á þetta mál. Þetta er búið að vera hér í þinginu — sjálfur var ég framsögumaður raforkulaga í heilmikilli endurskoðun fyrir þremur árum og þar var fjallað um raforkuöryggi, skilgreiningar á raforkuöryggi, og umræða varð um hvernig ætti að takast á við þetta. Líka varðandi orkustefnuna þegar við sátum í tvö ár við að móta orkustefnu fyrir Ísland til 2050 og hvernig ætti að takast á við raforkuöryggi og síðan einstaka þætti varðandi heimilin í landinu. Kannski væri gott að fá það fram hvað hv. þingmanni finnst.

Ég vil síðan segja, varðandi það sem hv. þingmaður segir um að hér sé eins og öll orka sé seld á lágu verði og annað, að menn verða að líta til þeirra breytinga sem hafa orðið á allra síðustu árum varðandi raforkuverð til stóriðjunnar ef við lítum bara á þróun síðustu tíu ára. Þetta hefur gjörbreyst, enda sýnir það sig í afkomu Landsvirkjunar í dag hvað orkuverðið hefur breyst.