raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, það er eins gott að við séum að njóta þess gríðarlega háa raforkuverðs sem er í heiminum, eða í Evrópu a.m.k., í góðri afkomu Landsvirkjunar og þess að stórnotendur á Íslandi séu að greiða hærra verð en áður hefur þekkst. Það er bara mjög eðlilegur hlutur miðað við þann gríðarlega orkuskort sem er í Evrópu sem m.a. má rekja til stríðsins, innrásar Rússa í Úkraínu. Hvernig á að bregðast við? Eins og kemur fram í frumvarpinu er í 9. gr. raforkulaga, sem varðar skyldur flutningsfyrirtækja, fyrirtækisins Landsnets, kveðið á um að ef óviðráðanleg atvik valda því að framboð fullnægi ekki eftirspurn þá beri flutningsfyrirtækinu að grípa til skömmtunar. Við skömmtun skuli gæta jafnræðis og byggja á málefnalegum sjónarmiðum sem nánar skuli útfærð í reglugerð. Sambærilegt ákvæði er að finna í 16. gr. laganna varðandi dreifiveitur. Í ákvæðum núgildandi laga er ekki tryggt að almenningi beri að njóta forgangs við skömmtun. Það er tilgangur með þessu frumvarpi hér, þ.e. að tryggja forgang notenda sem kaupa raforku til heimilisnota, mikilvægra samfélagsinnviða og fyrirtækja með færri starfsmenn en 50. Ég er þannig ekkert ósammála því að heimilisnotendur fái forgang, ég er algjörlega sammála því. Þetta er bara atriði sem vantar í lögin. Og viti menn, í tilskipun ESB eru sameiginlegar reglur um innri markað fyrir raforku, sem ég tel að Ísland hefði átt að hafna. Ég skrifaði um það í skýrslu Orkunnar okkar, þar sem þetta á ekki við, en þar er mælt fyrir um skyldu aðildarríkja til að tryggja heimilum svokallaða alþjónustu. Þetta sýnir náttúrlega hvernig innleiðingin er á tilskipunum ESB. Það hefur ekki verið neitt neitt. Það hefur bara verið parkerað einhverjum reglugerðum og núna, þegar allt er komið í óefni, þá er gripið til þess að innleiða þennan hluta af tilskipun 2009/72/EB, sem hér (Forseti hringir.) er vitnað til. Ég er ekkert ósammála efni frumvarpsins. (Forseti hringir.) Ég er bara að fjalla um forsendurnar fyrir því hvers vegna þetta er komið í þetta óefni. Og svo eru það náttúrlega önnur mál. Hvernig stendur á því (Forseti hringir.) að við séum árið 2024 loksins að innleiða þetta ákvæði þessarar tilskipunar? Það sýnir hvers konar húmbúkk (Forseti hringir.) og vitleysa þetta hefur verið.