154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[18:43]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir góða og yfirgripsmikla ræðu. Hv. þingmaður hefur nokkuð góða reynslu og sérþekkingu á slíkum málum. Ég staldraði svolítið við byrjun ræðunnar hjá hv. þingmanni þar sem hún kom inn á uppbyggingu og nýtingu náttúruauðlinda. Í þessari umræðu, alla vega út frá því sem ég hef séð í dag, hafa hv. þingmenn sem hafa komið upp í pontu talað oft á tíðum um að lausnin við því vandamáli sem blasir við, sem frumvarpinu sem við ræðum nú er m.a. ætlað að leysa, sé í raun fólgin í því að framleiða meiri raforku og byggja upp fleiri orkumannvirki til þess.

Nú hefur hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir gríðarlega mikla þekkingu á slíkum málum og þá sérstaklega í tengslum við náttúruauðlindir og umhverfisvernd. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður sé á þeirri skoðun líka, enda blasir við að náttúruauðlindir eru takmarkaðar og við erum búin að setja lög á fót, m.a. vegna þjóðréttarlegra skuldbindinga sem við höfum innleitt. Við erum með lög um stjórn vatnamála, lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana og erum síðan með náttúruverndarlögin, sem eru vissulega ekki innleiðing á einhverri tiltekinni Evrópugerð heldur samansett löggjöf af ýmsum alþjóðlegum skuldbindingum um umhverfisvernd sem ytri þættir raforkuframleiðslu, þ.e. uppbyggingar- og framkvæmdaferli raforkumannvirkja, fara stundum í bága við og uppfylla ekki skilyrði laga um náttúruvernd hvað varðar umhverfisáhrifin sem þeir mega ekki hafa.

Mig langaði bara að athuga hvar hv. þingmaður stendur í þessu máli. (Forseti hringir.) Er lausnin við þessu vandamáli sem blasir við núna í raun meiri raforkuframleiðsla?