raforkulög.
Frú forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur fyrir svarið. Ég ætlaði bara að fylgja þessu aðeins eftir. Nú hafa íslensk stjórnvöld sett sér markmið, sem er vissulega ekki lögfest, um að ná fullum orkuskiptum fyrir árið 2040, án þess að skilgreina hvað full orkuskipti eru og án þess að þessi markmið séu í samræmi við markmið Evrópusambandsins. Við erum að fara svolítið fram úr okkur þegar kemur að því að ná þessum markmiðum en með vísan til þessara markmiða eru stjórnvöld að réttlæta og rökstyðja þörfina fyrir fleiri aðgerðum til þess að afla meiri raforku þegar það blasir við að framboð er ekki einu sinni nægt. Það er munur á raforkuskorti og framboðsskorti en það er ekki nægt framboð af raforku til þess að anna núverandi eftirspurn, hvað þá fullu orkuskiptin sem við ætlum okkur að tryggja. Því vil ég spyrja hv. þingmann hvort að íslensk stjórnvöld séu að hennar mati að fara aðeins fram úr sér þegar kemur að því að setja svona háleit markmið (Forseti hringir.) og hvort markmiðin um að ná fullum orkuskiptum fyrir árið 2040 gætu komið í veg fyrir að markmið þessa frumvarps náist.