154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[18:50]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég treysti mér ekki til að svara seinni spurningunni. Ég er ekkert endilega viss um að þótt þetta frumvarp yrði að lögum að það hefði mikil áhrif á orkuskiptaferlið. Hins vegar hafa verið sett háleit markmið, bæði hvað varðar 2030 og 2040. Það liggur fyrir að við vitum ekki hvernig við ætlum að ná þeim. Ekki er búið að uppfæra aðgerðaáætlun sem við höfum nú beðið eftir misserum saman. Það er ekki búið að setja niður plan í nokkrum eðlilegum skrefum um orkuskipti á landi, á sjó og í flugi þegar tæknin leyfir okkur það og við erum komin þangað. Það er engin áætlun og við vitum ekki hvernig við ætlum að komast þangað. Allt tal um orkuskipti verður bara fullkomlega ómarktækt í þessu pólitíska umhverfi.