raforkulög.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Nú er býsna erfitt að stýra og tryggja raforkuframleiðslu í lokuðu raforkukerfi sem byggir á grænni endurnýjanlegri auðlind, ef við setjum það í samhengi við það að á síðustu þremur árum hafa verið tvö mjög slæm vatnsár í uppistöðulónum landsins og væntanlega er það síðasta núna í vetur það versta síðan við fórum að fylgjast með þessum uppistöðulónum og stöðu þeirra. Þeim sem hér stendur hefur þótt umræðan í gærkvöldi og í dag hafa breyst svolítið miðað við hvernig við tókum hana fyrir nokkrum árum. Það var kannski enginn rosalegur áhugi á því þegar maður var að ræða mikið um flutningskerfi raforku árin 2017–2020, en það er mikilvægt í dag í þessu samspili við slæm vatnsár. Við erum með þrjú uppistöðulónakerfi sem fyrst og fremst tryggja framleiðsluna. Þau eru við Þjórsár- og Tungnaársvæðið, síðan erum við með Blöndulón og svo lónið fyrir austan. Þá hlýtur flutningskerfið eiginlega að vera grundvöllur þess að tryggja þessa stöðu, enda hefur komið fram í vetur og líka þegar þetta var sem verst fyrir tveimur árum að væntanlega hefði það bjargað mestu ef við værum ekki að eiga við það sem við erum að eiga við. En ég lít kannski á það frumvarp sem við erum að fást við sem enn eina breytuna í því að búa til enn frekari sveigjanleika og reyna að tryggja hann þegar þessi versta staða kemur upp í 60 ára sögu þessara lóna. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvaða augum hún lítur þetta.