raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Auðvitað getur verið erfitt að stýra raforkuframleiðslu í lokuðu kerfi og við erum að eiga við náttúrulegar auðlindir, en okkur hefur tekist það býsna vel á síðustu 50–60 árum. Við kunnum að virkja vatnsafl og gerum það býsna vel. Við stöndum okkur alveg sæmilega í því að virkja jarðvarmann en við nýtum hann kannski ekki vel, alla vega ekki til raforkuframleiðslu. Við vitum að okkur vantar meira heitt vatn. Við vitum að það koma reglulega slæm vatnsár og svo eru líka að verða breytingar á loftslagi og veðrakerfi, en við vitum reyndar ekki nákvæmlega hvaða áhrif það mun hafa á okkur. En það sem ég er að kalla eftir er meiri fyrirhyggja. Það þarf kannski ekkert endilega að finna upp nýja hluti af því að við erum búin að ákveða að innleiða t.d. ákveðna öryggisventla til að tryggja raforkuöryggi fyrir almenning og fyrirtæki, önnur en stóriðjuna, og þá eigum við að byrja þar. Hvernig við gerum það nákvæmlega — hér í þessu frumvarpi er lögð til ákveðin leið ef við erum komin í það óefni að skammta þurfi orku í landinu. Ég hefði kosið að við hefðum tekið það heildstætt til skoðunar og byrjuðum á því hvaða hagsmuni þyrfti að tryggja fyrst. Síðan er það umræðan um hversu mikla orku okkur vantar eða hversu mikla orku við viljum í viðbót og í hvað hún á að fara. Þá hlýtur það líka að vera okkar að tryggja að orkan sem við náum í með nýjum virkjunum komi í veg fyrir að svona geti gerst. Ég held að þetta samspil þurfi að vera.