154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[18:57]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég er algjörlega sammála hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni um mikilvægi flutningskerfisins. Þau vandræði sem við höfum verið í á liðnum árum hafa m.a. verið vegna þess að flutningskerfið er ekki eins og það þarf að vera til að flytja orkuna á rétta staði og af þeim styrk sem við þurfum. Þetta vitum við öll. Ég veit að við hv. þingmaður erum miklar áhugamanneskjur um landsskipulag, kannski ekki alltaf af sömu ástæðum en ég held því hiklaust fram að raforkuöryggi sé það sama og þjóðaröryggi og þannig þurfum við að hugsa. Við þurfum að hugsa um raforkuöryggi með sama hætti og við hugsum almennt um þjóðaröryggi. Þá kannski fer myndin að skýrast yfir það hvað er nauðsynlegt að gera, þær áætlanir sem við þurfum að gera, bæði varðandi flutningskerfið og heimilin og fyrirtækin í landinu. Ég held að mörgu leyti að þar séu mörg tækifæri fyrir okkur til þess að skýra þessa hugsun enn betur.