154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[18:58]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og fróðlega. Þetta er sannarlega mikilvæg umræða og áhugaverð sem við erum að eiga hér í dag og áhugavert hvað það er í rauninni breytt litróf af sjónarmiðum sem komið hefur fram. Mig langaði svolítið að fara út í það sem tíðrætt er um varðandi orkuskortinn. Kjarninn þar er auðvitað sá að ef það skortir orku hér á landi þá snýst það um forgangsröðun, þetta vitum við. Auðvitað á forgangsröðunin að vera fyrir fólk til að hafa tryggan aðgang að orku, til að halda hita og hafa ljós á heimilum sínum, eitthvað sem ég held að við flest viljum geta talið sjálfsagt í dag. Það myndi maður halda að væri alger grunnskylda.

Raforkukerfið sem frumvarp þetta varðar á að geta varið almenning fyrir annars vegar orkuskorti og hins vegar háu verði, en það eru auðvitað tvær hliðar á sama peningnum. Dæmin sem við þekkjum eru auðvitað alveg hræðileg. Dæmi eru um að skerðanleg orka sé uppseld og neyðast fjarvarmaveitur á Vestfjörðum til að brenna olíu til að halda hita á heimilum. Svo eru þessi dæmi úr Vestmannaeyjum, þar sem húshitun er orðin að einhverjum lúxus. En það sem er áhugavert við frumvarpið er að þar er ekkert tekið á þessu. Ekkert er tekið á þessu í frumvarpinu. Mig langar að spyrja hv. þingmann um afstöðu hennar til þessa. Auðvitað er þetta flókið verkefni, ég ætla ekkert að gera lítið úr því, en ég velti fyrir mér hvort samtal um það hefði ekki þurft að eiga sér stað áður en frumvarpið kom hér til umræðu og hvað það segir okkur að ekki sé búið að leysa þennan þátt.