raforkulög.
Frú forseti. Ég held nefnilega að lykillinn hér felist í því þegar þú setur samninga um skerðanlega orku á borðið og sanngjarnt verð til almennings. Ég hef heyrt forstjóra Orkubús Vestfjarða halda því fram að ef þau gætu ekki keypt skerðanlega orku yrði þetta allt of dýrt og myndi þá ekki borga sig að reka fjarvarmaveiturnar. Ég hef líka heyrt orkumálastjóra halda því fram að auðvitað verði sveitarfélög að hætta að kaupa skerðanlega orku. Það er líka ábyrgðarhluti að kaupa skerðanlega orku og bjóða íbúum í sínum sveitarfélögum upp á að hægt sé að skerða. En svarið er auðvitað að sveitarfélögum, sem bera ábyrgð á þjónustu við íbúa sína og velferð þeirra að sjálfsögðu líka að einhverju leyti, sé gert kleift að kaupa endurnýjanlega orku á sanngjörnu verði, að henni sé komið til þeirra. Komum við þá aftur að flutningskerfinu. Við vitum að umræðan um orkuskortinn eða meintan orkuskort hefur auðvitað ekki verið til annars en að drepa umræðunni á dreif og telja fólki trú um að það eina sem við þurfum að gera sé að framleiða meiri orku þegar allt sem við höfum verið að ræða í dag og í gær sýnir okkur að þetta snýst ekki um það. Þetta snýst um lagaramma, forgangsröðun, atvinnustefnu, vernd fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu og á endanum að raforka sé seld heimilum og fyrirtækjum á viðráðanlegu verði.