raforkulög.
Forseti. Já, ég er sammála hv. þingmanni. Vandamálið er þetta með stórnotendurna og ætti að vera auðvelt að sækja lausnir. Þetta snýst um forgangsröðun, vissulega gerir það það. Við erum með raforkukerfi þar sem 80% orkunnar renna til stórnotenda og það er samt bara handfylli fyrirtækja. Raforkukerfið sem við erum með er þannig að framleiðslan eðlilega sveiflast eftir vatnafari og við erum að nota náttúruauðlind til að framleiða endurnýjanlega orku. Það er alveg eðlilegt að náttúrulegar sveiflur hafi þannig áhrif á framboð, en þá hefði maður haldið að það ætti að vera búið að laga kerfið að þessu. Þetta er eitthvað sem ætti að vera auðveldara að leysa heldur en með einhverri flókinni löggjöf og maður hefði haldið að ef þessi forgangsröðun væri leiðarljósið værum við fyrir löngu síðan búin að finna lausnir. (Forseti hringir.) Það er ekki eins og þetta sé eitthvert nýtt kerfi sem er komið upp, þetta snýst um það að við höfum verið að forgangsraða kolvitlaust.