raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og ég get svarað henni alveg hreint og beint og af bestu samvisku: Ég hef enga trú á þessu, ekki snefil. Við megum ekki gleyma því að þetta er svo lítið magn og það á að fara að sigla með þetta frá Evrópu á sama tíma og við siglum með sorpið okkar til Evrópu til að brenna það. Sorpið okkar er brennt í Evrópu. Á svo að flytja það hingað til að dæla því niður? Er það hluti af þessum pakka? Og svo er mengunin af því að flytja þetta fram og til baka. Hitt er að það er engin spurning, þeir sem hugsa um náttúruvernd benda á að þetta muni valda súrnun sjávar, súrnun vatns á þessu svæði og við erum að tala um svæði sem er skilgreint sem eldvirkt svæði. Það er örstutt í eldgos. Þarna ætlum við að fara að bora langt niður í jörðina til að dæla. Bara eitt eldgos í sjálfu sér mengar (Forseti hringir.) á einhverjum klukkutímum meira en nokkurn tímann það sem við ætlum að bjarga með þessari tækni.