154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[19:29]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið en ég held að okkur verði að greina á um nauðsyn þess að fara í frekari rannsóknir á sviði kolefnisförgunar. Hér er um að ræða slíkt tímamótaverkefni sem við þekkjum að fer fram af hálfu Carbfix sem við vitum að er á ákveðnu frumstigi þrátt fyrir miklar fjárfestingar hérlendis. Mannkynið bindur miklar vonir við það að kolefnisförgun geti orðið að veruleika. Við vitum hins vegar að skölunin á þessu verkefni hefur ekki náð þeirri getu sem við þurfum á að halda til þess að þetta verði lausn við hinum mikla loftslagsvanda sem við stöndum frammi fyrir. En ég minni á, og þetta er samlíking sem ég bind svolítið vonir mínar við, að fyrsta flugið var farið af hálfu Wright-bræðra 1903 og rúmlega 60 árum seinna (Forseti hringir.) vorum við farin til tunglsins. Það er mjög margt hægt og við eigum ekki láta okkar eftir liggja.