154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[19:32]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og þátttöku hans í þessari umræðu. Það er eitt og annað sem kviknar í kollinum þegar hlustað er á ræður hérna inni. Ég ætlaði nú að spyrja um annað en mig langaði kannski fyrst að fara í þetta sem var nefnt hérna síðast, bara til að fá það á hreint. Maður heyrir stundum úr bandarískri þjóðmálaumræðu þegar er verið að tala um bruna á jarðefnaeldsneyti að það hvað maðurinn geri skipti ekki miklu máli vegna þess að það komi t.d. mikil mengun úr náttúrunni við eldgos og annað og þá hafa nú stundum eldgosin hérna á Íslandi verið tekin sem dæmi. Þá langar mig að spyrja í framhaldi af þessum ummælum og svona til þess að ég skilji það rétt: Er það skoðun hv. þingmanns að það að það séu einhverjir atburðir í náttúrunni sem geti búið til eitthvert ástand eigi að hafa það í för með sér að það sem maðurinn getur gert til að hafa áhrif á það sama skipti kannski ekki miklu máli?