raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir fyrirspurnina. Nei, alls ekki, ég er náttúrusinni. En ég bara get ekki liðið að það sé verið að eyða milljörðum króna í eitthvað sem ég sé engan tilgang í og sé ekki að við séum að bjarga einu eða neinu. Við þurfum ekki annað en að fara til Asíu þar sem allir eru á tvígengisbílum og mengunin er gífurleg. Ég held að það hafi verið hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sem sagði hérna að ef Ísland hyrfi tæki það Kína þrjá daga að menga jafn mikið og Ísland, á meðan við værum ekki að menga neitt. Það er svo galið að við séum að eyða milljörðum á milljörðum ofan á sama tíma og fólk er að svelta og á ekki fyrir mat eða lyfjum. Þá erum við að þykjast vera í einhverjum leik um það að við erum að selja kvóta — við eigum að einbeita okkur að því sem við getum virkilega gert fyrir náttúruna (Forseti hringir.) en ekki vera með þennan leikaraskap að vera að markaðsvæða og reyna að plata fólk með því að segja að ef við eyðum milljörðum í að dæla niður einhverju efni (Forseti hringir.) séum við að bjarga einhverju í náttúrunni. Þetta er bara kolrangt.