raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Varðandi þetta hnattræna samhengi þá heyrir maður það stundum í umræðunni að við séum svo smá og þær aðgerðir sem við grípum hér til t.d. í þágu loftslagsmála, við erum auðvitað að framleiða hérna mikið af grænni orku, að framlag okkar í sjálfu sér skipti ekki máli í hinu stóra hnattræna samhengi. Ég er svolítið ósammála þessu viðhorfi vegna þess að ég tel að þetta sé þannig vandi að allar þjóðir, algerlega óháð stöðu þeirra áður en menn fara að pæla í loftslagsmálunum og hversu langt við erum komin í einhverjum öðrum orkuskiptum eða ekki, þurfi að taka þátt og það fríar okkur ekki þeirri ábyrgð að taka þátt í því sameiginlega markmiði heimsbyggðarinnar að reyna að draga úr losun. Þannig að mig langar að umorða þetta sem ég var að segja hérna áðan: Eigum við Íslendingar þá að vera stikkfrí að sumu leyti vegna þess að við erum svo litlir í hnattrænu samhengi eða er ég að misskilja hv. þingmann?