154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[19:38]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég er alveg sammála henni vegna þess að þetta er plástur. Það sem er verið að gera í dag er bara plástur og þetta er auðvitað algjörlega röng framsetning. Auðvitað eigum við fyrir löngu að vera komin með heildstæðan pakka. Auðvitað átti fyrir löngu að vera búið að taka dreifikerfið okkar og ganga frá því. Það hefur verið nægur tími til þess. Hugsið ykkur ef við hefðum bara skellt okkur í þetta þegar vitað var að það þyrfti að gera þetta, þá hefði verið gengið þannig frá regluverkinu að það væri ekkert hægt að stoppa. Sjáum bara Reykjanesið: Ef það hefði verið búið að setja aðra línu þar, búið hringtengja Reykjanesið, þá hefði verið uppi allt önnur staða t.d. þegar heita vatnið fór í Svartsengi. Það hefði verið allt önnur staða í Reykjanesbæ. Við erum alltaf einhvern veginn eftir á að plástra og alltaf er ríkisstjórnin að elta rassinn á sjálfri sér og gerir þar af leiðandi ekkert nema að plástra. Þetta er bara enn einn plásturinn og svo þarf hún örugglega að finna nýjan.