154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[19:43]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er ekki á móti, ég óttast bara, eins og alltaf þegar svoleiðis skeður, að þá komi einn aðili og fari að græða á því og það bitni á heimilum og bitni á þeim sem verst hafa það, þeim sem eru á lægstu framfærslunni og laununum. Það er þess vegna. Ég óttast þetta alltaf. Þeir selja þetta ekki nema þeir fái eitthvað fyrir og þar af leiðandi munu þeir aldrei selja okkur þetta til baka, held ég, án þess að þeir fái að græða eitthvað á því og jafnvel græða jafn mikið og þeir græddu við að framleiða álið. Það er það sem ég óttast. En ég er alveg sammála honum, ég held að við ættum að hafa þá reglu að tala um raforkumál hérna einu sinni í mánuði í þinginu þannig að við höldum okkur bara vel upplýstum og fylgjumst vel með. Þá held ég að loksins myndi fara eitthvað ganga bæði með Landsnet og virkjanir.