raforkulög.
Frú forseti. Það er enginn að segja að þó að menn séu fastir í orkusamningi þá geti þeir ekki nýtt orkuna. Ég er ekki að segja að það þurfi að vera einhver stórgróði. Ég er bara að tala um þegar það eru fastur orkusamningar og menn geta ekki nýtt orku með neinum hætti en þurfa að borga fyrir hana. Fyrirtækin eða stórnotendurnir hafi þá tækifæri til að koma henni aftur í not. Það er það sem ég er að segja fyrst og fremst. Það þarf ekkert endilega að fylgja alltaf með að menn séu að stórgræða og allt voða neikvætt. Þetta hlýtur alltaf að snúast um það að vera með skynsamlega orkunýtingu í þessu kerfi. Við erum að tala um klukkustundir, vonandi, eitthvað sem getur gerst á einhverjum tíma. Við erum með versta vatnsárið núna og við erum að bregðast svolítið við vegna þess að nú erum við bara komin í verstu stöðu. Þetta er líka örugglega vegna hækkandi orkuverðs til stórnotendanna, það hefur hækkað það mikið að það er komið á sama stað og hjá almenningi, en var mun lægra. Þetta er breytingin á síðasta áratug. Þetta ásamt því að það verður svona slæm vatnsstaða hefur ýtt gríðarlega undir þetta. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að nýta bæði þessa orku og glatvarmann. (Forseti hringir.) Það var opnað á það fyrir þremur árum í raforkulögunum að nýta glatvarmann betur frá stóriðjunni í almenna nýtingu.