154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[19:45]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég er sammála honum að mörgu leyti en maður óttast það alltaf þegar það koma inn milliliðir, einn, tveir, þrír milliðir. Það sem ég óttast mest er að við byrjum á sama ruglinu og er í Evrópu. Það væri alveg skelfilegt ef við myndum koma einhvers staðar nálægt því að þurfa að fara að hafa áhyggjur af því á heimilunum hvenær við getum sett raftækin okkar í samband og hvort við hefðum bara hreinlega efni á að setja tækin í samband. Fyrir utan það þá erum við með fólk hér á landi sem treystir á rafmagn til kyndingar og borgar það dýru verði bara að komast í sturtu, miðað við það sem við gerum hérna á hitaveitusvæði. Þannig að það er orðin mikil þörf fyrir það að við pössum upp á að allir fái raforku á sama verði og standi jafnfætis í þeim málum.