raforkulög.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Hún snerti auðvitað á hinu og þessu og fjallað um orkumál í víðum skilningi og í samhengi við náttúruvernd. Auðvitað væri gaman að taka hér einhvern tímann, og kannski verður það gert seinna í kvöld eða nótt, hvað veit maður, dýpri umræðu um einmitt tilskipun Evrópusambandsins um endurnýjanlega orku og hvort einhverjar af þeim reglum sem þar er að finna væru nýtilegar á Íslandi. Mér fannst dálítið sláandi þegar ég lék mér að því um daginn að lesa mig í gegnum tilskipunina og hugsaði: Þarna eru ákvæði og reglur sem yrði aldrei, aldrei, aldrei pólitísk sátt um á Íslandi. Enda er staðan í Evrópu náttúrlega allt önnur þegar kemur að orkumálum og við erum komin svo miklu lengra þegar kemur að nýtingu á endurnýjanlegum orkugjöfum, orkuauðlindum.
Það sem mig langar kannski að spyrja hv. þingmann um hér lýtur sérstaklega að efni þessa frumvarps og nefndarálits meiri hlutans í atvinnuveganefnd. Það er þessi lykilbreyting sem er lögð til um að stórnotendum verði hleypt inn á jöfnunarorkumarkað Landsnets. Það hafa komið fram ákveðnar efasemdir um þetta, þá ekki endilega að fólk sé kategórískt á móti því að stórnotendum sé gert kleift að nýta orkuna betur og endurselja hana undir vissum kringumstæðum og að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. En ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún hafi sterkar skoðanir á þessu, hvort hún hafi velt fyrir sér hugsanlegum áhrifum af þessu og svo getum við haldið áfram þegar ég kem í seinna andsvar.