raforkulög.
Frú forseti. Þetta er bara nákvæmlega pælingin sem ég hef: Ef við værum að líta til þess hvernig við myndum innleiða téð regluverk um endurnýjanlega orku og orkugjafa þá væri þetta að vissu leyti innan ramma þeirra orkukosta sem hafa verið settir í nýtingarflokk skv. 4. gr. laga um — ég ætla ekki einu sinni að reyna þetta. Varðandi „overriding public interest“, með leyfi forseta, þá varðar þetta tiltekin ákvæði sem framkvæmdin gæti stangast á við. Þetta eru m.a. ákvæði vatnatilskipunarinnar, ákvæði fuglaverndartilskipunarinnar og búsvæðisverndartilskipunarinnar. Nú erum við ekki búin að innleiða tvær af þessum tilskipunum. Við erum hins vegar búin að innleiða vatnatilskipunina þannig að ég veit, (Forseti hringir.) virðulegi forseti — ég held að við mættum alveg líta til þess að stytta málsmeðferðarferlið eða leyfisveitingarferlið út af því að það liggur alveg fyrir að töfin er mest í leyfisveitingarferlinu þar sem það þarf að afla framkvæmdaleyfis, byggingarleyfis, virkjunarleyfis, sem er m.a. fellt úr gildi. (Forseti hringir.) Ég kem kannski inn á þetta í seinni ræðunni minni. Þetta er bara ógeðslega áhugavert mál og ég þakka hv. þingmanni fyrir ógeðslega skemmtilegt andsvar. Þetta er mér hjartans mál.