raforkulög.
Frú forseti. Það er gaman að sjá hvað þú ert áhugasöm, hv. þingmaður. Ég vil spyrja hv. þingmann út í það sem mikið hefur verið rætt um í kvöld og það er þetta blessaða flutnings- og dreifikerfi raforkunnar okkar: Telur hv. þingmaður að stjórnvöld eða ríkisstjórnir undanfarinna ára hafi að einhverju leyti misst boltann þegar kemur að ekki aðeins uppbyggingu heldur einnig framþróun á flutnings- og dreifikerfi raforkunnar? Við höfum að vísu miðað við mörg önnur lönd afbragðsinnviði og erum framar en mörg önnur lönd þegar kemur að t.d. lagningu strengja í jörð. En er hv. þingmaður ekki sammála mér í því að það hefði verið hægt að gera svo miklu betur í þessum efnum? Við upplifðum gríðarlegt sjokk í kringum aftakaveðrið sem tók út fleiri raflínur víða um landið í desember 2019 og í mínum heimabæ var fólk rafmagnslaust allt upp í sjö daga. Mér finnst eins og stjórnvöld hafi ekki brugðist við á þann hátt sem maður hefði viljað sjá í kjölfarið á slíkum atburðum og ráðist í frekari eflingu og uppbyggingu á flutnings- og dreifikerfi raforku. Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á árangri ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks á þessu sviði?