raforkulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Í mínu seinna andsvari vil ég aðeins snúa mér annað. Ég vil snúa mér að þessari aðferðafræði sem við höfum innleitt til að meta virkjunarkosti, þ.e. rammaáætluninni. Telur hv. þingmaður að sátt ríki um þetta fyrirkomulag? Þá á ég við að það fari til verkefnastjórna sem hafa mismunandi verksvið og að þessar verkefnastjórnir meti hvort virkjunarkostir skuli fara í virkjunarflokk, biðflokk eða verndarflokk og það sé svo ráðherrans að leggja í kjölfarið fram rammaáætlun til þingsins sem fer yfir fyrirliggjandi gögn málsins og ákveður endanlega hvað skuli virkja. Vissulega má færa rök fyrir því að það megi með þessum hætti koma í veg fyrir að ráðist verði í virkjunarframkvæmdir sem mikil óánægja ríkir um, en er kannski ferlið of þunglamalegt? Getur verið að þetta margþætta og flókna kerfi geri það að verkum að við getum ekki fylgt áætlun um orkuþörf miðað við fólksfjölda og annað vegna þess einfaldlega að þegar virkjunarkostur loks kemur til framkvæmda þá er verið að svara eftirspurn sem stofnaðist e.t.v. fyrir 15 eða 20 árum?