154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[20:22]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vona að við fáum einhverja umræðu hér á eftir um flutningskerfi raforku og þar er búið að gera ýmislegt á síðustu árum sem væri hægt að ræða. Mig langar rétt að koma að nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar í þessu máli og lesa aðeins upp úr því og fá að spyrja síðan út í það. Með leyfi forseta:

„Markmið raforkulaga er að stuðla að þjóðhagslega hagkvæmu raforkukerfi og efla þannig atvinnulíf og byggð í landinu. Í þessu skyni skal skapa forsendur fyrir samkeppni í vinnslu og viðskiptum raforku, með þeim takmörkunum sem nauðsynlegar reynast vegna öryggis raforkuafhendingar og annarra almannahagsmuna, eins og segir í 1. mgr. 1. gr. laganna. Meiri hlutinn undirstrikar að raforkuöryggi og tryggt framboð raforku eru grundvallarþættir í þjóðaröryggi Íslands …“

Hv. þingmaður gerði svolítið lítið úr þeim þætti máls, fannst mér, að það væri um þjóðaröryggismál að ræða. Ég held að í öllum vestrænum ríkjum, og reyndar bara hvert sem litið er, sé aðgengi að raforku grundvallarmál. Það er litið á það sem bara forsendu fyrir vestrænu samfélagi eða hvað sem við erum að tala um. Ég bendi á að þegar ráðist er inn í lönd þá er það fyrsta sem ráðist er gegn fjarskiptakerfin og raforkukerfin, að rústa löndum með þeim hætti. Það er kannski svona fyrsta vers í þessu varðandi þennan þátt með þjóðaröryggi, ég myndi vilja dýpka aðeins þá umræðu. Mér fannst það ekki koma nógu skýrt fram áðan. Það væri áhugaverð pæling. Ég sé að þingmaðurinn hefur mikla ástríðu fyrir málinu eins og sumir aðrir hér. Ég held að ég hafi tekið fram í dag að hér hefur verið besta umræða um raforkumál í mjög langan tíma vegna þess að hér hafa mjög margir tekið þátt og það er gott.