154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[20:27]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er ósammála þessari nálgun, að hér sé ekki um þjóðaröryggi að ræða þegar við erum að ræða raforkukerfi í lokuðu kerfi í Norður-Atlantshafi og engin tenging við önnur kerfi. Við erum að ræða um græna, endurnýjanlega orkugjafa sem fara svolítið með náttúrunni og við erum að reyna að spila þetta sem öflugt raforkukerfi. Þá komum við kannski inn á punktinn sem var nefndur áðan með flutningskerfið og mikilvægi þess að það sé öflugt til að nýta lónin, þessi þrjú kerfi sem eru fyrir austan, Blöndulón og síðan Þjórsá og Tungnaársvæðið. Það er mikilvægt. Hér í dag erum við að tala um fyrirhyggju, að horfa til framtíðar. Hvernig ætlum við þá að hafa þetta eftir tíu ár, 15, 20? Ef við ætlum að raforkuvæða samfélagið allt, við ætlum að treysta 100% á raforku, hætta að brenna jarðefnaeldsneyti, þá hlýtur þetta að verða eitt helsta þjóðaröryggismál þjóðarinnar, að raforkukerfið sinni og komi til móts við þær þarfir sem samfélagið hefur og geti staðist alla þá áraun og áhættu, hafi áfallaþol og viðnámsþrótt. (Forseti hringir.) Þannig lít ég nú á það þegar við erum að tala um að horfa aðeins fram í tímann líka.