154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[20:28]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það kemur svolítið á óvart að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson sé að tala af svona mikla ástríðu fyrir inngripi á markaðinn. Ég hélt að flokkurinn sem hv. þingmaður situr fyrir á Alþingi væri hlynntur frjálsum markaði með eins litlum inngripum ríkisins og hægt er. En þetta frumvarp er að vissu leyti einhvers konar inngrip. Hvað varðar framtíðarsýnina og raforkuvæðingu samfélagsins þá er ég sammála því. Það er þörf á því að raforkuvæða samfélagið. Hv. þingmaður spurði mig hvernig ég sæi framtíðina fyrir mér í þeim málum. Til að byrja með þá gætum við lögfest ákvæði um raforkuvæðingu þannig að við hefðum einhverja lagalega stoð að styðjast við þegar kemur að aðgerðum til að tryggja að rafvæðingin geti átt sér stað, af því að þetta mun fara í berhögg við ýmis ákvæði sem kveða á um vernd náttúrunnar. Eins og hv. þingmaður kom inn á sjálfur fer endurnýjanleg orka og náttúran saman, en það fer samt líka gegn hvort öðru. (Forseti hringir.) Við erum á sömu línu hér að einhverju leyti en ég er bara að segja að við þurfum að gæta hófs (Forseti hringir.) í því að vega að náttúrunni í þágu raforku almennings og raforkuþarfar almennings. (Forseti hringir.) En til að byrja með þá finnst mér liggja beint við að við þurfum að lögfesta hugtakið orkuskipti.