154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[20:44]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vildi halda áfram að spyrja um uppistöðulón en vík nú frá vatninu sem í þau safnast og sný máli mínu að setinu sem á botninn fellur. Nú eru stærstu virkjanir okkar yfirleitt að virkja gruggugar jökulár, svo sem Blöndu, Þjórsá og Jökulsá á Fjöllum. Ég veit að ég myndi ekki drekka það vatn ósíað sem í þeim rennur. Mér skilst að með árunum þá safnist á botn uppistöðulónanna set og eftir nokkra áratugi séu lónin meira og minna full af drullu. Þannig séð eru þessar virkjanir okkar í raun aðeins tímabundnar því að lónin munu á endanum fyllast og þar með virkjanirnar ónýtast. Ég las um daginn á netinu að í arðsemismati Kárahnjúkavirkjunar hefði verið miðað við 60 ára líftíma. Þá skilst mér að þau miklu flóð sem urðu í Pakistan í fyrra hafi að hluta til átt sér stað vegna þess að svigrúmið til að safna í uppistöðulón virkjananna við rætur Himalajafjalla hafi verið orðið svo lítið einmitt vegna setsöfnunar. Ég vil því spyrja hv. þingmann: Höfum við gert ráð fyrir því hvernig við mætum áhrifum slíkrar setsöfnunar í framtíðinni og munum við geta tekist á við það verkefni, annaðhvort með því að ræsta uppistöðulónin með einhverjum hætti eða byggja nýjar virkjanir í stað þeirra sem ónýtast?