154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[20:45]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu, sem ég verð nú samt að viðurkenna að mig skortir að einhverju leyti þekkingu til að svara. En auðvitað er það þannig að vatnsaflsvirkjunum fylgir ákveðinn fórnarkostnaður og ákveðinn skaði sem verður á náttúrunni. Stundum er skaðinn að einhverju leyti afturkræfur en ekki að öllu leyti, og ég held m.a. af þessum ástæðum þá skipti máli að við fjölgum orkukostum, að við séum ekki að setja öll eggin í sömu körfuna þegar kemur að því hvort við viljum virkja jarðhita eða vatnsafl. Ég held að við verðum líka að horfa til vindsins og ekki bara á landi heldur líka á hafi úti. Ég held að þetta sé verkefnið vegna þess að það verður áfram þörf og eftirspurn eftir raforku (Forseti hringir.) og við þurfum að leita allra leiða til að framleiða hana þannig að áhrifin á náttúruna verði sem minnst.