154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[20:47]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hans. Um þetta atriði sem hv. þingmaður ræddi mikið áðan varðandi það að stórnotendur geti endurselt inn á kerfið, þá sneri minn punktur í fyrri ræðum kannski meira að því að þetta væri kannski líka forsenda fyrir atvinnulífið, sem væri ekki að nýta alla orkuna, til að nýta orkuna betur. Það geta orðið bilanir í verksmiðjunum eins og maður þekkir og getur verið lokað vegna sölutregðu eða eitthvað, þannig að til er umframorka í kerfinu sem er vannýtt. Ég er ekki búinn að heyra um þessa skilmálabreytingu sem hv. þingmaður nefndi. Ég hef ekki heyrt af henni áður þannig að ég get ekki tjáð mig beint um hana, en þetta mál snýst líka svolítið um að bæta heildaröryggið í kerfinu með þessum anga því að þarna liggur svo mikil orka inni í stóriðjunni. Alls konar atvik geta komið upp og er þá ekki eðlilegt að geta haft aðgengi að þessari orku þegar eitthvað bjátar á?

Aðeins um viðhorf hv. þingmanns varðandi raforkukerfið okkar sem þjóðaröryggismál, hvernig hv. þingmaður lítur á það í lokuðu grænu endurnýjanlegu orkukerfi, langt frá öllum öðrum kerfum, ótengt, og hvernig við eigum að hugsa um þann þátt máls. Í nefndaráliti meiri hluta atvinnuveganefndar í þessu máli er einmitt minnst á þennan þátt, þjóðaröryggisvinkilinn. Sú umræða hefur náttúrlega vaxið mjög, til að mynda eftir desemberstorminn 2019 þegar verulega bjátaði á í flutningskerfinu og við sáum það í rauninni hrynja á ákveðnum stöðum. Hvernig lítur hv. þingmaður á þessa þætti?