154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[20:49]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hvað varðar fyrri spurninguna um möguleika stórnotenda til að endurselja orku inn á jöfnunarorkumarkað Landsnets þá minntist hv. þingmaður sérstaklega á bilanir og að það gæti verið mikilvægt fyrir atvinnulífið að í slíkum tilvikum væri hægt að nýta orkuna. Þá velti ég fyrir mér hvort það væri ekki einmitt skynsamlegt að skrifa eitthvað slíkt inn í lögin, að bilanir verði t.d. að skilyrða með einhverjum hætti við kringumstæður, hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til þess að gripið sé til þess að versla við stórnotendur um jöfnunarorku. Það er ekkert slíkt að finna í þessu nefndaráliti og þessari breytingu sem hér er verið að leggja til.

Hv. þingmaður spurði líka um orkuöryggi í samhengi við þjóðaröryggi. Ég tek undir með hv. þingmanni að í lokuðu raforkukerfi eins og við erum með, þar sem við eigum allt undir því að tryggja raforkuöryggi um allt land, þá er auðvitað orkuöryggi ekki bara velferðarmál og atvinnumál heldur líka þjóðaröryggismál.