raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni og held að þetta sé holl umræða sem við eigum hér. Ég vona að þegar þessari umræðu lýkur verðum við búin að fá einhvern botn í það hvað felst í breytingartillögum meiri hlutans úr því að nú þegar er búið að heimila stórnotendum að selja inn á jöfnunarorkumarkaðinn samkvæmt skilmálum Landsnets, hvers konar skyldur er raunverulega verið að setja á Landsnet og hvað það mun hafa í för með sér. Ég hef ákveðnar áhyggjur af þessu. Mér finnst þetta vera vanreifuð breytingartillaga. Um leið og við getum notið þess að standa og sitja hér saman og ræða um orkumálin — ég veit að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson er í essinu sínu og er ánægður með þessa umræðu — þá vona ég að við getum líka fengið einhvern botn í þetta (Forseti hringir.) og ef við fáum hann ekki þá verði a.m.k. hægt að fá einhvers konar loforð fram um að málið fái annan umsagnarhring í atvinnuveganefnd áður en það verður afgreitt út sem lög. (Forseti hringir.) Við viljum ekki endurtaka leikinn sem var leikinn fyrir nokkrum vikum.