154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[20:54]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðari ræðu hans. Nú vil ég láta þess getið að ég sit ekki í atvinnuveganefnd sem hefur þetta mál til umfjöllunar og hef bara kynnt mér grunnþætti þess, en ég hjó eftir því í ræðu hv. þingmanns þegar hann talaði um, ef ég skildi hann rétt, hvað það væri í raun mikið af efnisatriðum sem ætti að setja inn í reglugerð. Þegar maður skoðar þetta frumvarp, t.d. 2. gr., þá finnst mér svo mikið vera skilið eftir af því sem við einhverjar aðstæður ætti að vera inni í lögunum sjálfum. Gæta skuli jafnræðis við skömmtun og byggja á málefnalegum sjónarmiðum sem nánar skulu útfærð í reglugerð; þetta stakk mig aðeins af því að manni finnst mikið vera skilið eftir og vinnan kannski — ég ætla ekki að segja hálfnuð, en mikið vera eftir af vinnunni. Mér finnst þetta aðeins haldast í hendur við það sem hv. þingmaður er að benda á varðandi þá umsögn sem barst í dag frá ASÍ þar sem er talað um einhvern snúning á málinu. Nú játa ég að ég þekki málið ekki nema í breiðu strokunum. Ég lít svo á að við séum hér að ræða þjóðaröryggismál og algjöra grunnþjónustu fyrir landsmenn og atvinnustarfsemi. Ef það er á huldu hvaða aðilar það eru sem eiga að njóta góðs af breytingunum þá veltir maður fyrir sér hvað frumvarpið er eiginlega að tala um. Þetta tvennt, þessi gagnrýni frá ASÍ og þessi punktur um að manni finnst einhvern veginn vanta að klára söguna sjálfa í frumvarpinu þegar reglugerðin er orðin nánast jafn stór að inntaki og lagafrumvarpið sjálft, er ekki bara eitthvað lagatæknilegt. Af hverju er ekki verið að svara þessum spurningum í frumvarpinu sjálfu?