raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það sem er þó jákvætt í frumvarpinu er að það er verið að taka ákveðin atriði sem áður voru bara í reglugerð og skrifa þau sérstaklega inn í lögin varðandi það sem er ekki kallað svo hér en er hliðstætt einhvers konar alþjónustuskyldum gagnvart heimilum og fyrirtækjum og grunnþjónustu, félagslegum innviðum og öðru slíku. Það er verið að negla inn í lögin ákveðin viðmið um það hvernig skömmtun verði háttað, atriði sem áður voru nær einvörðungu tíunduð í reglugerð.
Varðandi hitt sem hv. þingmaður kemur inn á, umsögn Alþýðusambands Íslands, þá er það auðvitað þannig, eins og Alþýðusambandið bendir á, að þetta frumvarp felur ekki í sér neina heildarlausn á þeirri stöðu sem er uppi og er verið að leitast við að taka á, hvorki þetta frumvarp né frumvarpið sem var mikið til umræðu um síðustu áramót. Eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson hefur bent réttilega á í þessari umræðu eru t.d. fjarvarmaveiturnar sá þáttur sem — ef það er eitthvað í umræðunni um ójafnvægi á orkumarkaði og skerðingar á raforku sem hefur kannski snert fólk hvað mest og valdið hvað mestu uppnámi þá er það þetta með fjarvarmaveiturnar, skerðingarnar til þeirra sem hafa valdið því að verið er að brenna olíu, t.d. á Vestfjörðum. Ekkert í frumvarpinu tekur á þessu. Fjarvarmaveiturnar eru áfram margar hverjar með sína skerðanlegu samninga og eru ekki á meðal þeirra aðila sem munu njóta forgangs ef til skömmtunar kemur.