154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[21:00]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Auðvitað er það óheppilegt að umsögn berist svona seint en ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að það virðist hafa misfarist í atvinnuveganefnd að senda Alþýðusambandi Íslands umsagnarbeiðni, sem er með nokkrum ólíkindum því að launafólk um allt land er svo sannarlega hagsmunaaðili í þessu máli þegar kemur að raforkuöryggi. Ég held að gæta verði sérstaklega að þessu framvegis og hugsa kannski aðeins út fyrir rammann. Þótt eitthvert mál heiti breyting á raforkulögum þá getur vel verið að það séu ekki bara Orkustofnun, Landsvirkjun og Landsnet sem eigi að fá umsagnarbeiðnir um það. En ég held að þessi umsögn sem barst frá Alþýðusambandinu sé mikilvæg og ætti að verða okkur tilefni til að dýpka þetta og svara að einhverju leyti þessum áhyggjum sem áður voru vissulega viðraðar á vettvangi nefndarinnar, (Forseti hringir.) bæði af mér og af fulltrúa Viðreisnar í nefndinni. Ég held að í ljósi þess að umsögnin er fram komin sé algerlega einboðið að nefndin bregðist við. (Forseti hringir.) Þetta eru stærstu heildarsamtök launafólks á Íslandi og það verður að vera algjörlega skýrt hvað er verið að gera með þessum lögum og hvað ekki.