154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[21:22]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmanni hefur verið tíðrætt um að þetta sé þjóðaröryggismál og ég er sammála honum. En þjóðaröryggi er margs konar. T.d. höfum við talað mikið um það síðasta árið að matvælaframleiðsla sé þjóðaröryggismál líka. Því langar mig að vísa í ummæli hv. þm. Þórarins Inga Péturssonar, sem sagði í dag að hann vildi skoða það líka að ekki bara almenningur hefði forgang að orku og smærri fyrirtæki heldur að við ættum að ákveða í hvers konar atvinnuuppbyggingu orkan færi og það ætti kannski að veita ákveðinni starfsemi forgangi orku umfram aðra. Hann nefndi sjávarútveg og landbúnað, jafnvel á kostnað gagnavera. Þetta voru hans orð svona óbeint.

Mig langar að spyrja hvernig þetta slær hv. þingmann, hvort hann telji að það væri kannski nauðsynlegt að gera það og taka bara betur undir þetta frumvarp vegna þess að ASÍ gagnrýnir einnig í sinni umsögn að þetta sé hálfgerður bútasaumur og hefði þurft að gera þetta með heildstæðari hætti. Hefði þá ekki verið ráð núna að líta jafnvel til þessara þátta sem hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson talar um og ákveða líka að nota orkuna til þeirra þátta sem byggja þá enn frekar undir þjóðaröryggi okkar?