154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[21:24]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Því miður heyrði ég ekki ræðu hv. þm. Þórarins Inga Péturssonar í dag. Það er náttúrlega meira tengt almenningi þegar við erum að tala um hefðbundna atvinnustarfsemi; matvælaframleiðslu, sjávarútveg, fiskvinnslu eða hvað það er. Það er alveg eðlilegt að skoða það. Ef það er tengingin að tryggja þjóðaröryggi við það sem snýr að matvælavinnslu og slíkum hlutum þá finnst mér það bara mjög eðlileg nálgun. Við höfum náttúrlega rætt hér fæðuöryggi, matvælaöryggi og annað á síðustu árum. Og sérstaklega kannski síðustu tvö árin eftir innrás Rússa í Úkraínu hefur sú umræða aukist mikið sem snýr að þessum þáttum. Það kemur fram, eins og ég var að minnast á í minni ræðu, að þetta er mál sem Alþingi hefur verið að fást við mjög lengi, þ.e. raforkuöryggi. Þetta er ekki nýtt mál. Það kemur alveg fram, eins og ég las um í nefndaráliti áðan í þessu máli, að þarna er verið að bregðast við ákveðnu ástandi. Það kemur fram í nefndarálitinu að það þarf að fara fram frekari vinna varðandi heildarlöggjöf sem snýr að þessu. Ég held að meiri hluti nefndarinnar sé í raun að benda á að það sé verið að bregðast við ákveðnu ástandi. Þetta er nákvæmlega það sem ég var að segja áðan varðandi það sem við vorum að fást við t.d. í orkustefnunni til 2050, þetta er flókið efni og þar var einmitt sagt að það yrði að koma til frekari vinna sem snýr að þessari löggjöf sem við erum að fást við hér. Þannig að ég tek bara undir það að hér er ekki verið að klára efnið. Reyndar grunar mig að þetta efni verði nú svolítið bara almennt gangandi hérna í umræðu á næstu árum.