154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[21:27]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Já, við Íslendingar erum býsna dugleg við að bregðast við ástandi. En kannski ættum við að vera duglegri við að horfa á heildarmyndina. Og aðeins áfram með fyrirtæki. ASÍ segir í sinni umsögn að það hafi áhyggjur af breytingartillögum meiri hlutans þar sem stórnotendum verður gert kleift að selja orku inn á kerfið til að bregðast við orkuskorti án þess að stjórnvöld skipti sér af því. ASÍ bendir á að t.d. fræðilega gætu álver séð sér hag í því að draga saman eða hætta tímabundið framleiðslu og selja frekar orkuna, væntanlega undir því yfirskini að ná meiri hagnaði. Nú er þetta auðvitað tilgáta sem einhverjum getur þótt langsótt. En dæmin sýna nú að við þurfum að horfa á hlutina hvað getur mögulega gerst í verstu tilfellum. Mig langar einfaldlega að spyrja hv. þingmann hverju hann svari þessari gagnrýni Alþýðusambands Íslands, sem eru stærstu launþegasamtök landsins.