154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[21:34]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar aðeins í framhaldinu að segja að við erum auðvitað að nota hugtök þegar við erum að tala um orkumál og orkukerfið okkar og annað sem við eigum í sjálfu sér miðað við allar forsendur landsins og gæði landsins ekki að vera að nota, við erum að tala um skort, skömmtun. Hv. þingmaður notaði líka hér orðið fyrirhyggjuleysi áðan, sem er reyndar alveg ágætt og lýsandi orð yfir ástandið sem hefur verið að skapast. Mig langar að spyrja hv. þingmann, vegna þess að mér hefur fundist svolítið mikið um það að þingmenn Sjálfstæðisflokksins komi hér í hinum ýmsu málaflokkum og tali um að það sé ákveðið ástand í gangi. Við getum nefnt lögreglumálin, við getum nefnt ríkisfjármálin og nú erum við að tala um orkumálin, raforkukerfið okkar, orkuöryggi og allt það. Þeir sem bera ábyrgð á þessu hljóta að vera þeir sem hafa verið við völd og stýrt þessum málaflokkum ansi lengi þannig að þegar rætt er um ákveðið fyrirhyggjuleysi, er það ekki óvenju heiðarleg sjálfsgagnrýni af hálfu þingmannsins?