raforkulög.
Herra forseti. Ég held að það sé alls ekki þannig, ég held að menn eigi alltaf að vera gagnrýnir í sínum störfum. Sá sem hér stendur hefur kannski talað einna mest um þessi mál í þó nokkuð langan tíma með ákveðinni gagnrýni sem snýr sérstaklega að uppbyggingu flutningskerfisins. Nú er það þannig með okkar kerfi, og það er það sem er m.a. verið að reyna að fást við með sameiningu stofnana, mál sem er verið að fást við í umhverfis- og samgöngunefnd, að það er verið að reyna að einfalda ferlana eins og hægt er. Ég held að þingmenn hljóti að vera sammála því að við séum búin að koma okkur upp allt of flóknu kerfi sem er að hamla því að við getum byggt og tryggt raforkuöryggi í þessu landi og notað þessa auðlind sem við höfum sem allir öfunda okkur af. Allar þjóðir öfunda okkur af þessari stöðu sem við höfum. Það er það sem ég er að gagnrýna. Það mega nú margir taka það til sín yfir mjög langan tíma þannig að ég vil ekki halda mig akkúrat í núinu um þá stöðu sem er komin upp varðandi orkumál þjóðarinnar. En eftir (Forseti hringir.) umræðu dagsins í dag þá ætla ég vona að það séu flestallir að komast á svipaðar slóðir og við getum þá tekið á þessum málum á næstu misserum til að ná einhverjum góðum árangri.