raforkulög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur fyrir góða spurningu, eins og Ameríkaninn segir. Nú þekki ég ekki bilið þarna á milli nægilega vel og af hverju þetta var svona. Maður var kannski á öðrum stað, í sveitarstjórnum, á þeim tíma. En þegar við tókumst á við málið fyrir tveimur árum sátum við hv. þingmenn bæði í umhverfis- og samgöngunefnd og áttum við þetta mál. Það gekk svo sem ágætlega og líka hitt málið með aflaukningu virkjana sem ég held að hafi verið mjög skynsamlegt mál og snerist fyrst og fremst um að takast á við afltoppa í álaginu. Það voru mikil vonbrigði á sínum tíma, og ég held að það hafi skemmt mjög mikið fyrir ferlinu varðandi rammaáætlun 3, að hópar þrjú og fjögur skiluðu aldrei formlega sínu sem sneri annars vegar að samfélagslegu áhrifunum og síðan efnahagslegu áhrifunum í ramma 3. Það var talað um tímaskort og þess vegna kláraðist ekki sú vinna og þannig var búið að rjúfa svolítið sáttina. Ég held að það hafi nú verið ein ástæðan fyrir að þetta gekk illa, að ferlið sem var ákveðið þarna einhverjum árum áður gekk ekki í gegn. Þeim sem hér stendur fannst þetta gagnrýnisvert á sínum tíma þegar maður fylgdist með þeirri umræðu og ég veit að þá tóku margir undir svipuð sjónarmið og ég held að það hafi haft mjög slæm áhrif. Síðan þekki ég bara ekki þingsöguna, hv. þingmaður þekkir það betur af hverju það gekk svona illa innan búðar, í sölum Alþingis, að eiga við þetta mikilvæga mál, sem er svo sem komið í betri farveg núna. En ég held að þessi truflun að hópar þrjú og fjögur innan rammaáætlunar 3 hafi ekki skilað af sér hafi haft mjög slæm áhrif á allt þetta ferli.