raforkulög.
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir svörin. Jú, ég tek svo sem undir það með hv. þingmanni að það var bagalegt að þessir tilteknu faghópar skyldu afgreiða sín mál með þessum hætti en það var gert og fyrir því voru færð málefnaleg rök og það lá fyrir. Á endanum snýst sáttin sem rammaáætlunin hefur snúist um um pólitíska sátt, um það að við hér á hinu háa Alþingi komum okkur saman um ákveðna forgangsröðun. Þess vegna er hún þannig byggð upp að þó svo að hún fari í gegnum verkefnisstjórn og meðhöndlun faghópa og mjög faglega og góða sérfræðirýni þá endar málið hjá okkur. Við þurfum sem þingmenn að taka pólitíska ábyrgð á rammanum, rétt eins og sveitarstjórnarfulltrúar þurfa að taka pólitíska ábyrgð á sínum skipulagsmálum og öðru slíku. Ég ætla því bara að svara spurningunni fyrir þingmanninn: Ég held að fyrir þessu séu pólitískar ástæður.